Hárgreiðslu- og förðunarmeistarinn Karl Berndsen mætir aftur til leiks og núna fær hann þjóðkunna Íslendinga í þáttinn.
Kalli er sérfræðingur á sínu sviði og þættirnir hans hafa slegið í gegn hjá íslenskum áhorfendum. Kalli kemur með einfaldar lausnir og gefur góð ráð í fatavali, snyrtivörum og hárgreiðslu. Hann upplýsir öll litlu leyndarmálin í tískubransanum og kennir fólki að leyfa líkamanum að njóta sín.