Landsliðskokkurinn Hrefna Rósa Sætran hefur heillað áhorfendur SkjásEins í skemmtilegum matreiðsluþáttum þar sem hún eldar einfalda og ljúffenga rétti sem leika við bragðlaukana.
Núna snýr hún aftur með léttar, ferskar og framandi uppskriftir sem hún kryddar með skemmtilegum hugmyndum.
Hrefna er yfirkokkur og einn af eigendum Fiskmarkaðarins, eins af vinsælustu og bestu veitingastöðum landsins. Hún galdrar fram gómsætar kræsingar og gefur áhorfendum hugmyndir um hvað er hægt að gera á einfaldan hátt.
Þúsundir Íslendinga hafa skráð sig í Matarklúbbinn og fá uppskriftir Hrefnu sendar eftir hvern þátt.