Katrín Fjeldsted snýr aftur með þáttinn Innlit/ útlit eftir stutt frí. Þættirnir hafa fylgt SkjáEinum frá upphafi ávallt notið mikilla vinsælda hjá áhorfendum.
Katrín er innanhússarkitekt að mennt en hún nam í Bandaríkjunum og bjó þar og starfaði í átta ár, bæði í Arizona og Chicago. Undanfarin fjögur ár hefur hún starfað sjálfstætt á Íslandi.
Katrín tók við sem stjórnandi þáttarins sl. haust og hefur komið með ferskan blæ sem áhorfendur kunna vel að meta.
Í vetur hafa þættirnir verið styttri en áður en með álíka miklum efnistökum. Fyrir vikið eru þættirnir hraðari og skemmtilegri en jafnframt stútfullir af fróðleik og áhugaverðum viðtölum.