- Ekkert venjulegt sjónvarp

Um þáttinn

 

Laddi fer á kostum í hlutverki Hauks húsvarðar sem kynnir myndböndin í þáttaröðinni Fyndnar fjölskyldumyndir. Eins og nafnið gefur til kynna eru sýnd bráðfyndin myndbrot sem áhorfendur senda inn.

Þátturinn er unninn í samstarfi við Disney sem framleiðir America’s Funniest Home Videos og er meginþorri myndefnisins fenginn þaðan en einnig er stór hluti íslensk myndbrot.

Þættinum hafa borist yfir 2000 íslensk myndbrot á einu ári og eins og áður fær sá sem á besta íslenska myndbrotið vegleg verðlaun.

Þetta eru þættir sem öll fjölskyldan getur skemmt sér saman yfir.



Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is