Fréttir og veður frá fréttastofu Morgunblaðsins. Fréttirnar eru alla virka daga kl. 19:30 en eru síðan endurteknar að lokinni dagskrá kvöldsins.
Fréttirnar eru í opinni dagskrá og er megináherslan lögð á stuttar og hnitmiðaðar fréttir.
SkjárEinn og Morgunblaðið tóku höndum saman í október og hófu útsendingar á fréttum og veðri alla virka daga.
Inga Lind Karlsdóttir er aðalfréttalesari SkjásEins en Hlynur Sigurðsson er fréttastjóri sjónvarpsfrétta á mbl.is. Hinn eiturhressi Siggi Stormur sér um veðurfréttirnar eins og honum einum er lagið.