Stefnumótaþátturinn Djúpa laugin er kominn aftur á dagskrá SkjásEins eftir fimm ára hlé. Ástargyðjurnar Ragnhildur Magnúsdóttir og Þorbjörg Marínósdóttir, eða Ragga og Tobba, stýra þættinum og hjálpa einstæðum Íslendingum að finna ástina í skemmtilegum leik. Þættirnir eru byggðir upp svipað og þeir voru áður en Ragga og Tobba eru þó með nýjar áherslur og skemmtilegar nýjungar.
Djúpa laugin er meðal vinsælustu þátta SkjásEins frá upphafi og það voru áhorfendur sjálfir sem völdu Djúpu laugina sem þáttinn sem þeir vildu helst sjá aftur á SkjáEinum í kosningu sem efnt var til á 10 ára afmæli SkjásEins í október 2009.
Saga Djúpu laugarinnar
Djúpa laugin hóf göngu sína á SkjáEinum í júní árið 2000 og var það jafnframt fyrsti stefnumótaþátturinn í íslensku sjónvarpi. Þá voru það þær Laufey Brá og Kristbjörg Karí sem settu sig í hlutverk ástarguðsins Amors og leiddu saman tvær leitandi persónur. Þátturinn var upphaflega á dagskrá á fimmtudagskvöldum og sendur út í beinni útsendingu frá Astró. Djúpa laugin féll strax vel í kramið hjá áhorfendum og vakti bæði umtal og athygli.
Næstar til að stinga sér í Djúpu laugina voru þær Dóra Takefusa og Mariko Margrét Ragnarsdóttir sem tóku við stjórnartaumunum veturinn 2000-2001 en þá var þátturinn sendur út frá Leikhúskjallaranum.
Haustið 2001 var enn skipt um sundlaugarverði og þá tóku þau Þórey Eva og Júlíus Hafstein við og stýrðu þáttunum einn vetur.
Næst í laugina voru þau Hálfdán Steinþórsson og Kolbrún Björnsdóttir sem voru valin úr hópi fjölda umsækjenda sumarið 2002. Tíu aðilar fengu að spreyta sig á starfinu um sumarið og Hálfdán og Kolbrún voru síðan valin í kosningu meðal áhorfenda.
Haustið 2003 var ákveðið að þáttarstjórnendurnir yrðu þrír. Fyrir valinu urðu Bryndís Ásmundsdóttir, Auður Lilja Davíðsdóttir og Arthúr Karlsson sem skiptu með sér verkum um veturinn.
Djúpa laugin var alveg í hvíld árið 2004 en snéri síðan aftur í april 2005. Þá var Idol-hetjan Helgi Þór Arason tekinn við stjórnartaumunum ásamt Gunnhildi Helgu Gunnarsdóttur. Þau héldu uppi fjörinu fram á sumar en síðasti þátturinn fór í loftið 27. júní 2005.
FÖSTUDAGA KL. 21:00
í beinni útsendingu frá 80's Club við Grensásveg!