Bresk bílaþáttaröð sem nýtur mikilla vinsælda um víða veröld.
Sem fyrr eru það félagarnir Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May sem stýra þættinum af mikilli snilld þar sem breski húmorinn fær að njóta sín.
Í þessari þáttaröð er m.a. einn mjög óhefðbundinn þáttur af Top Gear þar sem þremenningarnir halda til Víetnam og fara í óvenjulega keppni yfir landið þvert og endilangt.
Þeir þurfa að ferðast á mjög skrautlegum faratækjum frá Ho Chí Minh City (Saigon) í suðurhluta landsins til borgarinnar Ha Long, nærri Hanoi í norðurenda landsins, alls 1.600 kílómetra á 8 dögum.
Þessi þáttur þykir einn sá allra besti af Top Gear frá upphafi.