Önnur þáttaröðin um Nate Ford og félaga hans í þjófagenginu sem ræna bara þá ríku og valdamiklu sem níðast á minnimáttar. Þættirnir slógu í gegn sl. vetur og voru í hópi vinsælustu þátta SkjásEins.
Óskarsverðlaunahafinn Timothy Hutton leikur aðalhlutverkið, mann sem vann við að góma svikahrappa og þjófa fyrir tryggingafélag en hætti eftir að svik tryggingafélagsins kostuðu son hans lífið. Nú starfar hann hinum megin borðsins og hefur fengið til liðs við sig fjóra einstaklinga sem hann hafði sjálfur fengist við í starfi sínu fyrir tryggingafélagið.
Í hópnum eru meistaraþjófur, tölvusnillingur, sérþjálfaður bardagamaður og lævís leikkona. Þegar hefur verið ákveðið að gera þriðju þáttaröðina.
Framleiðandi þáttanna er Dean Devlin sem gerði m.a. stórmyndirnar Independence Day og The Patriot.