Fimmta þáttaröðin um skrautlegan hóp lesbía í Los Angeles.
Þetta eru ögrandi þættir sem vakið hafa mikið umtal og hlotið einróma lof fyrir frábæra frásögn og raunsæja mynd af samfélagi samkynhneigðra kvenna.
Í The L Word eru margar áhugaverðar persónur sem endurspegla alla fegurðina og flækjurnar sem lesbíur í Los Angeles lifa við. Það gengur á ýmsu hjá vinkonunum í þessari þáttaröð og nýjar vinkonur eru kynntar til sögunnar og aðrar hverfa á braut.