Fimmta þáttaröðin um þennan skapstirða sérvitring sem er snillingur í að leysa læknisfræðilegar ráðgátur.
Nú þarf House að grípa til örþrifaráða til að koma í veg fyrir að eini vinur hans, dr. Wilson, yfirgefi hann.
House hefur verið vinsælasta erlenda þáttaröð SkjásEins undanfarin ár, enda er þetta sá þáttur sem mældist með mesta áhorf allra sjónvarpsþátta í heiminum árið 2008.
Þátturinn hefur hlotið fjölda verðlauna, m.a. hin virtu Peabody-verðlaun, tvenn Golden Globe verðlaun og þrenn Emmyverðlaun.
Hugh Laurie hlaut Golden Globe verðlaunin 2006 og 2007 fyrir frammistöðu sína í aðalhlutverkinu.