- Ekkert venjulegt sjónvarp

The Good Wife Þriðjudagar kl. 21:55

The Good Wife

Glæný þáttaröð sem hlotið hefur frábæra dóma.

The Good Wife er magnað lögfræðidrama með sterkum persónum og áhugaverðum sögum. Alica Florrick er eiginkona og tveggja barna móðir sem þarf að hefja nýtt líf eftir að eiginmaður hennar lendir í kynlífshneyksli og er dæmdur í fangelsi fyrir spillingu í opinberu starfi.

Hún þarf að leiða hugann hjá niðurlægingunni sem hann hefur valdið henni og snýr aftur til lögfræðistarfa eftir að hafa einbeitt sér að fjölskyldunni í 13 ár og stutt við bakið á eiginmanninum, saksóknaranum Peter Florrick.

Alicia var efnilegur lögfræðingur en fórnaði öllu fyrir eiginmanninn og lagði lögfræðistörfin til hliðar. Nú þarf hún að byrja á botninum og vinna sig upp metorðastigann en kemst fljótt að því að eiginmaður hennar á marga óvini.

Á sama tíma og hún fæst við flókin sakamál þarf hún að gera upp við sig hvort hún ætlar að fyrirgefa eiginmanninum.

Endursýningar

  • Fimmtudagar kl. 23:25
  • Þriðjudagar kl. 00:35


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is