Teiknimyndasería með kolsvörtum húmor og drepfyndnum atriðum.
Í Family Guy fylgjumst við með Griffin-fjölskyldunni sem er engri lík. Hjónakornin Peter og Lois búa á Rhode Island með börnum sínum þremur. Chris er ofvaxinn unglingur og Megan er vælandi táningur. Yngsta barnið heitir Stewie og er stórsnjallt en kolklikkað barn sem reynir ákaft að myrða móður sína og tortíma heiminum. Heimilishundurinn Brian er sá greindasti í fjölskyldunni.