Fimmta þáttaröðin af fyrirsætukeppninni Britain’s Next Top Model hefur göngu sína miðvikudaginn 27. janúar.
Íslenski ljósmyndarinn Hugrún Ragnarsdóttir (Huggy) er einn þriggja dómara í keppninni og að þessu sinni kemur hún með stelpurnar í ískalda myndatöku á Íslandi. Stúlkurnar bregða sér í gervi drottninga í Bláa lóninu og myndirnar eru einstaklega flottar. Þættirnir voru teknir upp sl. vetur og það vakti mikla athygli þegar stúlkurnar komu til Íslands.
Huggy er sjálf fyrrum ofurfyrirsæta og hefur átt farsælan feril sem ljósmyndari. Hún er öllum hnútum kunnug í módelbransanum og hefur m.a. unnið með stórstjörnunum Naomi Campbell, Linda Evangelista og Heidi Klum.