Raunveruleikaþáttur þar sem rómantíkin ræður ríkjum. Þetta er þrettánda þáttaröðin af Bachelor og piparsveinninn að þessu sinni heitir Jason Mesnick og er einstæður faðir frá Seattle. Áhorfendur kannast eflaust við hann úr síðustu þáttaröð af Bachelorette þar sem hann heillaði áhorfendur en DeAnna Pappas ákvað að hafna honum. Nú fær Jason annað tækifæri til að finna stóru ástina.