Bráðskemmtileg gamanþáttaröð sem hefur hlotið góðar viðtökur í Bandaríkjunum í vetur.
Billie er komin á fertugsaldurinn og ennþá ógift og barnslaus. Hún er búin að fá nóg á því að bíða eftir að kærastinn biðji hennar en hann er forríkur og eigandi dagblaðsins sem hún vinnur á.
Þegar hún fer út að skemmta sér með vinkonunum kynnist hún Zack, sem er rétt rúmlega tvítugur kokkur.
Eftir einnar nætur kynni kemst Billie að því að hún er ólétt. Zack býr í sendibílnum sínum og hún býður honum að flytja inn til sín... en bara sem vinir.
Aðalhlutverkið leikur Jenna Elfman sem áhorfendur muna eflaust vel eftir úr gamanþáttunum Dharma & Greg. Hún hlaut Golden Globe verðlaun fyrir hlutverk sitt í þáttunum og var tvisvar tilnefnd til Emmy-verðlauna.